11.08.21 - 13:22
Ívan Guðjón Baldursson
Ungur KR-ingur til Spezia (Staðfest)

Mynd: Hulda Margrét

Mynd: Hulda Margrét
Ítalska félagið Spezia er búið að landa Birgi Steini Styrmissyni, ungum KR-ingi fæddum 2004.
Birgir Steinn á tvo keppnisleiki að baki fyrir meistaraflokk KR þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gamall. Auk þeirra á hann tólf leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið lykilmaður í unglingaliðum KR.
Birgir Steinn er sterkur miðvörður sem getur einnig spilað í vinstri bakverði. Hann mun leika með U19 liði Spezia sem spilar í B-deild í unglingaliðakeppninni á Ítalíu. Meistaraflokkur Spezia leikur í Serie A og er Sveinn Aron Guðjohnsen samningsbundinn félaginu út tímabilið.
Erlend lið hafa horft mikið til Íslands undanfarin misseri til að sækja unga leikmenn.