Fotbolti.net
11.08.21 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Watford fær Kucka frá Parma (Staðfest)

Watford fær Kucka frá Parma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford er búið að tryggja sér slóvakíska miðjumanninn Juraj Kucka á eins árs lánssamningi frá ítalska félaginu Parma.
Kucka er 34 ára gamall og verður samningslaus eftir tímabilið. Hann vildi ekki spila með Parma í Serie B eftir fall í vor og gat félagið ekki leyft sér að halda áfram að borga laun hans.

Kucka er afar leikreyndur og skoraði 7 mörk í 28 leikjum á síðasta deildartímabili. Hann á tæpa 300 leiki að baki í Serie A fyrir Genoa, Parma og AC Milan auk þess að hafa spilað 86 landsleiki með Slóvakíu. Hann og Marek Hamsik mynduðu öflugt par á miðjunni þar og gera enn.

Hann mun berjast við menn á borð við Tom Cleverley, Imran Louza og Nathaniel Chalobah um sæti í byrjunarliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.