Fotbolti.net
11.08.21 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Yoshinori Muto farinn frá Newcastle (Staðfest)

Yoshinori Muto farinn frá Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle

Japanski framherjinn Yoshinori Muto er farinn frá Newcastle United á frjálsri sölu, þremur árum eftir að hafa verið keyptur frá Mainz á 10 milljónir punda.
Muto fann sig aldrei hjá Newcastle og skoraði í heildina tvö mörk í 28 keppnisleikjum fyrir félagið.

Ekki fannst kaupandi fyrir Muto og ákvað Newcastle því að hleypa honum burt frítt. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Vissel Kobe í Japan.

Muto er 29 ára gamall og hefur skorað 3 mörk í 29 landsleikjum fyrir Japan. Hann skoraði 10 mörk í 30 leikjum á sínu besta tímabili hjá Mainz en tókst ekki að endurtaka leikinn á Englandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.