Willian var á dögunum orðaður við endurkomu í enska boltann. Hann er 34 ára leikmaður sem hefur á sínum ferli bæði leikið með Arsenal og Chelsea í úrvalsdeildinni.
Hann hefur að undanförnu verið á mála hjá uppeldisfélaginu Corinthians í heimalandinu Brasilíu en hefur rift samningi sínum við félagið.
Hann hefur að undanförnu verið á mála hjá uppeldisfélaginu Corinthians í heimalandinu Brasilíu en hefur rift samningi sínum við félagið.
„Planið hjá honum núna er Fulham. Willian er búinn að rifta samningnum við Corinthians, það var samið um það í gær. Liðið er úr leik í Copa Libertadores og endurkoman hefur ekki verið ánægjuleg," segir Tim Vickery sem er séfræðingur Sky Sports News um suðuramerískan fótbolta.
„Hann fór á lögreglustöðina til að láta vita af því að hann hefði orðið fyrir netníð frá stuðningsmönnum félagsins á samfélagsmiðlum. Þetta hefur verið erfitt fyrir fjölskylduna hans líka."
„Hann hefur átt í viðræðum við Fulham í nokkra daga og það hentar honum viðskiptalega að búa í London. Hann naut sín mjög þegar hann var þar. Það lítur út fyrir að hann verði leikmaður Fulham," segir Vickery.
Arsenal ákvað að rifta samningi hans tveimur árum fyrr til þess að losna við hann.
Athugasemdir