fös 11. ágúst 2023 18:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarliðin í úrslitaleiknum: Ásta Eir ekki með Blikum
Ásta Eir Árnadóttir.
Ásta Eir Árnadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Líf byrjar.
Linda Líf byrjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að opinbera byrjunarlið fyrir bikarúrslitaleik Breiðabliks og Víkings sem hefst núna klukkan 19:00.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  1 Breiðablik

Fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir er fjarri góðu gamni hjá Breiðabliki vegna meiðsla. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Hildur Þóra Hákonardóttir og Írena Héðinsdóttir Gonzalez eru þá farnar út í nám í Bandaríkjunum. Toni Deion Pressley er ekki í byrjunarliði Breiðabliks og það er áfall.

Hjá Víkingi er byrjunarliðið eins og búist var við, nema það að Linda Líf Boama byrjar og Tara Jónsdóttir er á bekknum. Bergdís Sveinsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir, fæddar 2006, byrja hjá Víkingum.

Byrjunarlið Víkinga:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
6. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
8. Birta Birgisdóttir
10. Selma Dögg Björgvinsdóttir
13. Linda Líf Boama
17. Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir
22. Nadía Atladóttir (f)
24. Sigdís Eva Bárðardóttir
26. Bergdís Sveinsdóttir

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
5. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Taylor Marie Ziemer
9. Katrín Ásbjörnsdóttir
11. Andrea Rut Bjarnadóttir
14. Linli Tu
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
18. Elín Helena Karlsdóttir
28. Birta Georgsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner