Fotbolti.net
11.08.26 - 10:21
Kári Snorrason

Ásdís Karen á leið til FH

Á Víkingsvelli fyrr í sumar.

Á Víkingsvelli fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ásdís Karen Halldórsdóttir er á heimleið og er nálægt því að ganga í raðir FH frá Braga í Portúgal, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Þessi 26 ára gamli sóknarmaður hefur verið á mála hjá portúgalska liðinu í rúmt ár. Hjá FH mun Ásdís fylla í skarð Ídu Marínar Hermannsdóttur sem er á leið frá Fimleikafélaginu til Hammarby í Svíþjóð.

Ída er markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar með ellefu mörk í þrettán leikjum.
Ásdís lék síðast hérlendis sumarið 2023 og varð hún þá Íslandsmeistari með Val en hún er uppalin í KR.

Erlendis hefur hún leikið með með Madrid CFF á Spáni, Lilleström í Noregi og nú síðast Braga í Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.