Fotbolti.net
11.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leipzig og Porto sýna skotmarki Liverpool áhuga

Leipzig og Porto sýna skotmarki Liverpool áhuga
Canon

Mynd: EPA

Ibrahim Mbaye, vængmaður PSG, er gríðarlega eftirsóttur en Liverpool hefur verið í viðræðum við franska félagið.

Portúgalski félagaskiptasérfræðingurinn Sebastião Sousa-Pinto segir að Porto hafi áhuga á að fá hann til sín.
Porto sér tækifæri á að næla í senegalska leikmanninn þar sem Ferran Torres er á leið til PSG frá Barcelona. Þá vill félagið fá leikmann til að leysa Rodrigo Mora af hólmi sem er á leið til Roma.

Sky í Þýskalandi greinir frá því að RB Leipzig hafi einnig áhuga á honum en félagið gerir sér grein fyrir því að hann gæti verið of dýr.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.