Fotbolti.net
11.08.26 - 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hverjir voru lyklarnir að áhorfendameti Framara í gær?

Nánast setið í hverju einasta sæti eins og sést á mynd sem Hafliði Breiðfjörð tók í gær.

Nánast setið í hverju einasta sæti eins og sést á mynd sem Hafliði Breiðfjörð tók í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýtt áhorfendamet var sett á Lambhagavellinum í gær þegar Fram tók á móti KR í Bestu deildinni. Liðin höfðu sætaskipti í gær, KR komst upp í 2. sætið með sigrinum.

„Metið var 1860 minnir mig og við enduðum í 1908 áhorfendum í gær," segir Daði Guðmundsson sem er framkvæmdastjóri fótboltadeildar Fram.
„Lykillinn að þessu var að þetta var stakur leikur, góð umgjörð, pallborðsumræður og matur fyrir leik. Mikilvægi leiksins hefur auðvitað mikið að segja líka, toppslagur milli Fram og KR. Það var frábært veður og margir komnir heim úr sumarfríum."

„Það er blanda af þessu og því að KR-ingar mæta vel á sína leiki. Það hefur verið vel mætt yfirleitt af okkar stuðningsmönnum á leiki, en alltaf spurning hvernig gestaliðið mætir. Af gestaliðum mæta KR-ingar best,"
segir Daði.

Allt upp á tíu
Rætt var um umgjörðina í Innkastinu þar sem umferðin var gerð upp.

„Það viðraði vel fyrir stórleik, áhorfendamet sett á vellinum. Umgjörðin var upp á tíu, pallborðsumræður fyrir leik og dýrindis lambakjöt, þvílík veisla. Mikael Nikulásson var á meðal manna í pallborðinu, hann talaði í fyrirsögnum eins og oft áður og hann varpaði þeirri sprengju að liðið sem myndi vinna leikinn myndi standa uppi sem Íslandsmeistari," sagði Elvar Geir.

„Þetta var ótrúlega vel gert, Framarar eru virkilega flottir í þessu. Allt til fyrirmyndar," sagði Valur Gunnarsson.
Hverjir voru lyklarnir að áhorfendameti Framara í gær?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.