Fotbolti.net
11.08.26 - 09:47
Kári Snorrason

Bouaddi færist nær City - Barcola gefur Liverpool grænt ljós

Bouaddi vakti athygli á HM.

Bouaddi vakti athygli á HM.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Man City að styrkja miðjuna, Arsenal gæti losað þrjá stóra pósta og það nýjasta í málum Bradley Barcola og Liverpool. Þetta og margt fleira í troðfullum slúðurpakka dagsins.
Manchester City er nálægt því að semja við Ayyoub Bouaddi (18) frá Lille. Franska félagið metur marokkóska miðjumanninn á 100 milljónir evra (85 milljónir punda). (The Guardian)

Real Madrid hefur áhuga á að fá spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (25) frá Arsenal. Zubimendi varð heimsmeistari með Spáni fyrr í sumar. (Football.London)

Gabriel Jesus (29) er opinn fyrir því að ganga til liðs við Napoli frá Arsenal í sumar. (La Gazzetta dello Sport)

Roma hefur átt í viðræðum við umboðsmenn Gabriel Martinelli (25) um möguleg kaup á brasilíska kantmanninum frá Arsenal. (Mirror)

Barcelona og Tottenham hafa bæði nýlega kannað stöðuna á Harry Kane (33) hjá Bayern Munchen með þá veiku von að fá hann í sumar. (Teamtalk)

Man City er meðvitað um áhuga Nottingham Forest á Tijjani Reijnders (28), hollenska miðjumanninum sem City keypti frá AC Milan fyrir 46 milljónir punda síðasta sumar. (Sky Sports)

Bradley Barcola (23) hefur gefið Liverpool grænt ljós þrátt fyrir að Arsenal hafi gert seint áhlaup á franska sóknarmanninn. Barcola er metinn á um 130 milljónir punda. (The Sun)

Real Madrid hefur enn áhuga á Alessandro Bastoni (27), leikmanni Interm og Adam Wharton (22), leikmanni Crystal Palace. Félagið stefnir að því að ganga frá þremur leikmannakaupum til viðbótar í sumar. (Fichajes)

Pierre-Emile Höjbjerg (31), miðjumaður Marseille og Danmerkur, hefur hafnað möguleikanum á að ganga til liðs við Newcastle. (Talksport)

Manchester United íhugar nú að gera tilboð í David Raum (28), vinstri bakvörð RB Leipzig og Þýskalands, eftir að félaginu tókst ekki að fá Djed Spence. (Sky Sports)

Djed Spence (26), bakvörður Tottenham og Englands, er aftur orðaður við Inter eftir að ítalska félagið mistókst að fá Moussa Diaby frá Al-Ittihad. (Sky Sport Italia)

West Ham er í viðræðum við Arsenal um kaup á Reiss Nelson (26). Enski kantmaðurinn hefur verið á láni hjá Brentford og Fulham síðustu tvö tímabil. (Standard)

Hull City hefur fengið tilboði sínu í Zan Vipotnik (24) hafnað. Hann lék með Swansea á síðustu leiktíð og varð markahæsti leikmaður Championship-deildarinnar. (The Athletic)

Arthur Masuaku (32), varnarmaður Sunderland og Kongó, er að ganga frá félagaskiptum til Konyaspor í Tyrklandi. (Sky Sports)

Atlético Madrid hefur boðið 35 milljónir evra í Matias Fernandez-Pardo (21), sóknarmann Lille og Belgíu. Arsenal og Liverpool hafa einnig áhuga á leikmanninum. (L'Equipe)

Napoli hefur tekið upp viðræður á ný við Chelsea um kaup á franska miðverðinum Benoît Badiashile (25). (Sky Sport Italia)
Á radar Real Madrid.

Á radar Real Madrid.

Canon

Mynd: EPA

Mögulega á förum.

Mögulega á förum.

Canon

Mynd: EPA

Bradley Barcola hefur gefið Liverpool grænt ljós varðandi samningskjör.

Bradley Barcola hefur gefið Liverpool grænt ljós varðandi samningskjör.

Canon

Mynd: EPA

Spence er eftirsóttur.

Spence er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Napoli í viðræðum við Chelsea um Badiashile.

Napoli í viðræðum við Chelsea um Badiashile.

Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.