Fotbolti.net
11.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Solomon frá Tottenham til West Ham (Staðfest)

Solomon frá Tottenham til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: West Ham

Ísraelski vængmaðurinn Manor Solomon er genginn til liðs við West Ham frá Tottenham.

Kaupverðið er sjö milljónir punda. West Ham borgar fimm milljónir auk 2 milljónir árangurstengdar greiðslur.
Solomon skrifar undir þriggja ára samning við Championshipliðið með möguleika á framlengingu um eitt ár í viðbót.

Hann er 27 ára. Hann gekk til liðs við Tottenham árið 2023 á frjálsri sölu frá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk vegna stríðsástandsins.

Ferillinn náði aldrei á flug með Tottenham og hann fór á lán til Leeds tímabilið 2024–2025 og Villarreal og Fiorentina á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.