Fotbolti.net
10.08.26 - 22:45
Helgi Inguson

Helgi Sig: Grófum okkur í ansi stóra holu

Auglýsing
Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram

Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tók á móti KR í stórleik 18. umferðar í kvöld. Heimamenn lutu í lægra haldi í fjörugum leik. Fótbolti.net náði tali af Helga Sigurðssyni, aðstoðarþjálfara Fram, sem stýrði liðinu í fjarvera Rúnars Kristinssonar sem var í leikbanni.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 5 KR
„Við settum okkur í ansi stóra holu í byrjun leiks með því að hleypa KR-ingum tveimur mörkum yfir á fyrstu sex mínútunum. Við sýndum þó karakter og komumst inn í þetta. Það er ekki létt að lenda 3-0 undir gegn KR."

Hvert var leikplanið?

„Við ætluðum að stíga upp á þá og mæta þeim hátt upp á velli og klukka þá. Við náum því miður í byrjun leiks ekkert að klukka þá og erum langt frá mönnum. Í stað þess að gera árásir á þá, þá erum við að bakka af þeim og gefum þeim alltof mikinn tíma. Við vorum ekki líkir sjálfum okkur."

Framarar mættu öflugir út í seinni hálfleik eftir að hafa náð að minnka muninn í 1-3 undir lok fyrri hálfleiks.

„Við töluðum um það í hálfleik að koma sterkir út í seinni hálfleik, að ná þessu seinna marki. Við náum því og komum mjög vel inn í þetta fyrstu 25 mínúturnar í seinni. Við minnkum muninn, fáum dauðafæri til þess að jafna og erum að herja á KR. En eftir að þeir skora fjórða markið þá fjarar leikurinn frá okkur," sagði Helgi að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.