Fotbolti.net
11.09.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Telma Þrastardóttir í Stabæk (Staðfest)

Telma Hjaltalín Þrastardóttir.

Telma Hjaltalín Þrastardóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Telma Þrastardóttir er gengin til liðs við norska félagið Stabæk að nýju eftir tvö ár hér á landi með Val og Aftureldingu.
Telma lék 17 leiki í deild og bikar með Aftureldingu í sumar og skoraði í þeim átta mörk.

Hún er uppalin í Aftureldingu og hóf þar meistaraflokksferil sinn árið 2010 þegar hún skoraði 8 mörk í 13 leikjum.

Hún fór þaðan til Stabæk en gekk til liðs við Val sumarið 2012 og svo aftur í Aftureldingu fyrir þessa leiktíð.

Hún er þegar komin með leikheimild með Stabæk og spilar því ekki meira með Aftureldingu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.