Fotbolti.net
11.10.13 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Jón Þórir og Kristján Gylfi ráðnir þjálfarar Elliða (Staðfest)

Kristján Gylfi og Jón Þórir.

Kristján Gylfi og Jón Þórir.

Canon

Mynd: Fylkismenn.is

Jón Þórir Sveinsson og Kristján Gylfi Guðmundsson hafa verið ráðnir þjálfarar 2.flokks karla hjá Fylki, sem og 4. deildarliðs Elliða til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á Fylkismenn.is.
Þeir taka við starfinu af Garðari Smára Gunnarssyni og Fannari Berg Gunnólfssyni.

Jón Þórir er öllum hnútum kunnugur hjá Fylki en hann þjálfaði 2.flokk liðsins árin 2004 og 2005 og var aðstoðarþjálfari meistaraflokks 2004-2008. Þá var hann aðstoðarþjálfari hjá Fram sumarið 2009.

Hann hætti hins vegar hjá Fram þegar hann flutti á austurland, en á sínum aðstoðarþjálfaraferli hafði hann einnig verið aðalþjálfari í nokkrum leikjum.

Kristján þekkja flestir Fylkismenn en hann er einn af efnilegri þjálfum liðsins og hefur þjálfað yngri flokka félagsins undanfarin ár auk þess að sinna ýmsum stöfum fyrir félagið.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.