Fotbolti.net
11.10.15 - 17:00
Arnar Geir Halldórsson

Osorio tekur við Mexíkó (Staðfest)

Nýr þjálfari Mexíkóa

Nýr þjálfari Mexíkóa

Canon

Mynd: Getty Images

Kólumbíumaðurinn Juan Carlos Osorio hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Mexíkó.
Hann tekur við liðinu af Brasilíumanninum Ricardo Ferretti sem tók við í júlí á þessu ári en sú ráðning var eingöngu til bráðabirgða.

Osorio er reynslumikill en þessi 54 ára gamli þjálfari hefur farið víða á sínum þjálfaraferli. Hann var síðast þjálfari Sao Paulo í Brasilíu.

Mexíkó tryggði sér í gærnótt þátttökurétt í Álfukeppninni í Rússlandi árið 2017 þegar liðið lagði Bandaríkin í framlengdum leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.