Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ingvi tekur við Einherja (Staðfest)
Ingvi Ingólfsson.
Ingvi Ingólfsson.
Mynd: Einherji
Einherji, sem féll úr 3. deildinni síðasta sumar, hefur ráðið nýjan þjálfara fyrir karlalið sitt.

Ingvi Ingólfsson hefur undirritað samning þess efnis að hann muni stýra liðinu út næsta sumar.

Ingvi er Vopnfirðingum kunnur enda lék hann með Einherjaliðinu seinnipart síðasta sumars.

Ingvi er 29 ára gamall Hornfirðingur og fékk sitt knattspyrnuuppeldi hjá Sindra. Hann hóf sinn meistaraflokksferil með Sindra árið 2009 og lék með liðinu allt til 2017 er hann tók sér pásu frá fótbolta. Hann tók skóna aftur af hillunni 2018 og lék þá hálft tímabili með Leikni Fáskrúðsfirði. Árið 2019 var hann svo ráðinn spilandi þjálfari Sindra en því hlutverki gegndi hann fram á mitt sumar 2020. Auk þess að þjálfa meistaraflokk karla hefur hann komið að þjálfun yngri flokka auk þess að þjálfa meistaraflokk kvenna hjá Sindra eitt sumar.

Ingvi er með UEFA-B þjálfaragráðu og hyggst halda áfram og sækja sér UEFA-A réttindi við tækifæri. Þá er hann með BS-gráðu í íþróttafræði og MEd-gráðu í menntunarfræðum.

„Einherji býður Ingva velkominn til starfa en hans fyrsta verk verður að raða saman í lið fyrir næsta tímabil. Ljóst er að einhverjar breytingar verða á hópnum en vonandi verður hægt að tilkynna um framhaldið sem fyrst," segir í tilkynningu frá Vopnfirðingum.
Athugasemdir
banner
banner