Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   þri 11. október 2022 10:00
Elvar Geir Magnússon
Coutinho hefur orðið að martröð fyrir Gerrard
Umræða um framtíð Steven Gerrard, stjóra Aston Villa, færist í aukana eftir 1-1 jafntefli gegn botnliði Nottingham Forest í gær. Villa er þremur stigum fyrir ofan fallsæti en það er ekki bara stigasöfnunin sem skapar óánægja stuðningsmanna, líka slakur sóknarleikur liðsins.

Vandamál Villa endurspeglast í Brasilíumanninum Philippe Coutinho sem skoraði fimm mörk eftir að hann kom til félagsins á láni frá Barcelona í janúar. Hann er hinsvegar engu að skila eftir að hann var alfarið keyptur til félagsins.

Coutinho er hvorki að skora né leggja upp og hefur verið geymdur á bekknum í nokkur skipti.

„Coutinho hefur orðið að martröð fyrir Gerrard. Coutinho hefur ekkert sýnt en Gerrard ákvað að veðja algjörlega á hann," sagði sparkspekingurinn Chris Sutton við BBC.

„Ég er orðlaus yfir því hversu slakir sóknarmenn Villa eru. Ef leikmennirnir halda áfram að spila svona þá er spurning hvort Gerrard þurfi að skipta þeim út í janúar?" sagði Roy Keane við Sky Sports. „Þetta eru leikmenn með gæði en hafa brugðist."

Jamie Carragher segir að Coutinho sé skugginn af þeim leikmanni sem hann var og það sé eins og völlurinn sé of stór fyrir hann, hraðinn of mikill og aðrir leikmenn of kraftmiklir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner