Fotbolti.net
11.11.13 - 20:35
Magnús Már Einarsson

Arnór Snær í ÍA (Staðfest)

Arnór Snær í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur fengið varnar og miðjumanninn Arnór Snær Guðmundsson í sínar raðir frá Aftureldingu.

Arnór Snær er tvítugur að aldri en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Skagamenn.
Arnór hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið með meistaraflokki Aftureldingar frá því árið 2009 og í sumar var hann fyrirliði liðsins Hann hefur samtals skorað fjögur mörk í 73 deildar og bikarleikjum með Mosfellingum.

Í sumar var Arnór valinn í lið ársins í 2. deildinni af fyrirliðum og þjálfurum í deildinni.

Arnór Snær er fyrsti leikmaðurinn sem ÍA fær í sínar raðir eftir að Gunnlaugur Jónsson tók við liðinu á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.