11.11.13 - 18:23
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Örn Jónsson í Fylki (Staðfest)

Ásmundur þjálfari, Halldór, Gunnar Örn og Ásgeir Ásgeirsson formaður meistaraflokksráðs.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ásgeir formaður og Gunnar Örn.

Gunnar Örn Jónsson er genginn til liðs við Fylki en þetta var tilkynnt á Fylkismenn.is í kvöld. Gunnar Örn kemur til félagsins frá Stjörnunni og skrifaði undir tveggja ára samning við sitt nýja félag.
Þá hefur Halldór Björnsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari m.fl. karla og markmannsþjálfari m.fl. karla og kvenna. Haukur Ingi Guðnason sem var aðstoðarþjálfari verður nýr yfirþjálfari yngri flokka, auk þess að stýra afreksþjálfun félagsins. Hann mun jafnframt áfram koma að þjálfun meistaraflokks karla.
Gunnar Örn Jónsson er 28 ára gamall og kemur til Fylkis frá Stjörnunni þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Gunnar er uppalinn hjá Breiðabliki og spilaði sinn fyrsta leik fyrir Blika 17 ára gamall. Gunnar var lánaður til Fjölnis seinni hluta sumars 2006 en sneri aftur til Blika eftir leiktíðina. Hann gekk síðan til liðs við KR og lék með þeim frá 2008-2011. Gunnar á að baki 202 leiki í deild og bikar og hefur skorað í þeim 27 mörk.
Halldór Björnsson er 41 árs Selfyssingur sem spilaði lengst af með Selfossi á sínum ferli en á einnig leiki fyrir Ægi frá Þorlákshöfn, Fram og 3.deildarliðið Freyr sem reyndar er ekki lengur til. Hann var í þjálfara teymi A-landsliðs kvenna sem markmannsþjálfari frá 2011 með Sigurði Ragnari Eyjólfssyni og Guðna Kjartanssyni og fór m.a. með liðinu á EM í Svíþjóð fyrr á árinu.

Heimild: Fylkismenn.is

Ásgeir formaður og Gunnar Örn.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson