11.11.13 - 22:29
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Birkis í Sampdoria rekinn (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Delio Rossi hefur verið rekinn sem þjálfari Birkis Bjarnasonar og félaga í Sampdoria í ítölsku efstu deildinni.
Talið er að Zdenek Zeman og Sinisa Mihajlovic séu líklegastir til að taka við taumunum.
Talið er að Zdenek Zeman og Sinisa Mihajlovic séu líklegastir til að taka við taumunum.
Ákvörðunin var tekin eftir tap gegn Fiorentina, en Sampdoria er með 9 stig eftir 12 leiki og er búið að tapa þremur leikjum í röð, tveimur gegn nýliðum í deildinni.
Francesco Pedone tekur við sem bráðabirgðaþjálfari en Rossi og allt hans starfslið var rekið.
Francesco Pedone tekur við sem bráðabirgðaþjálfari en Rossi og allt hans starfslið var rekið.
Heimild: Football-Italia
