Fotbolti.net
11.11.15 - 09:00
Alexander Freyr Tamimi

Gary Bowyer rekinn frá Blackburn (Staðfest)

Gary Bowyer er nú atvinnulaus.

Gary Bowyer er nú atvinnulaus.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska knattspyrnufélagið Blackburn leitar nú að nýjum stjóra eftir að Gary Bowyer var látinn taka pokann sinn í gær.

Hinn 44 ára gamli Bowyer hafði stýrt liðinu frá því í maí 2013 og ákvað félagið að láta hann fara eftir einungis einn sigur í síðustu sex leikjum. Blackburn situr í 16. sæti Championship deildarinnar.
Auk Bowyer var þjálfarateymi hans látið fara og sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Blackburn að eigendurnir hefðu séð sig knúna til að taka þessa ákvörðun vegna úrslita á tímabilinu. Liðið hefur einungis unnið þrjá leiki á tímabilinu.

Arftaki Bowyer verður sjötti knattspyrnustjórinn sem ráðinn verður til Blackburn frá því að Venky\'s keypti félagið fyrir fimm árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.