Fotbolti.net
11.11.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Liam Killa í Hamar (Staðfest)

Liam Killa í Hamar (Staðfest)
Canon

Mynd: Hamar

Hamar í 4. deildinni hefur fengið Liam Killa til liðs við sig frá Ægi en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Liam mun einnig koma að yngri flokka þjálfun hjá Hamri sem eru í miklum blóma eftir að Hamarshöllin var reist.

Liam hefur leikið með Ægi undanfarin þrjú ár eftir að hafa spilað með Magna Grenivík árið 2012.

Ólafur Hlynur Guðmarsson þjálfari hefur einnig skrifað undir nýjann tveggja ára samning við Hamar.

Hamar hefur líka gert samninga við leikmenn frá síðasta tímabili.

Logi Geir Þorláksson, Daníel Rögnvaldsson, Hákon Þór Harðarson, Friðrik Örn Emilsson, Indriði Hrannar Blöndar, Þorlákur Máni Dagbjartsson og Brynjar Elí Björnsson hafa allir gert tveggja ára samning við félagið.

„Allar þessar undirskriftir eru liður í uppbyggingu félagsins sem hófst s.l haust eftir tvö slök ár. Okkar markmið er að byggja upp lið til framtíðar og koma Hamri á þann stað sem það á að vera,\" segir í yfirlýsingu frá Hamri.
Ólafur Hlynur þjálfari Hamars.

Ólafur Hlynur þjálfari Hamars.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.