Tímabilinu er lokið hjá framherjanum Florin Andone en hann er í láni hjá Galatasaray í Tyrklandi frá Brighton á Englandi.
Hinn 26 ára gamli Andone meiddist illa á hné og er á leið í aðgerð sem mun halda honum frá keppni út tímabilið.
Hinn 26 ára gamli Andone meiddist illa á hné og er á leið í aðgerð sem mun halda honum frá keppni út tímabilið.
Rúmeninn var lánaður til Galatasaray í byrjun tímabils en áður en að því kom hafði hann fengið rauða spjaldið í leik Brighton og Southampton fyrir ljótt brot.
Í Tyrklandi hefur Andone skorað tvö mörk í sex deildarleikjum en nú er ljóst að hann skorar ekki meira á þessu tímabili.
Athugasemdir