Fotbolti.net
11.11.21 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Gerrard nýr stjóri Aston Villa (Staðfest)

Gerrard er nýr stjóri Villa.

Gerrard er nýr stjóri Villa.

Canon

Mynd: Aston Villa

Steven Gerrard hefur látið af störfum sem stjóri Rangers í Glasgow og er tekinn við Aston Villa. Hann hélt um stjórnartaumana hjá Rangers í þrjú ár.

Þessi fyrrum fyrirliði Liverpool er 41 árs og náði á síðasta tímabili að stýra Rangers til síns fyrsta skoska meistaratitils í tíu ár.
Gerrard tekur við af Dean Smith á Villa Park en Smith var rekinn eftir fimm tapleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni. Villa er í 16. sæti, tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

„Aston Villa er félag með ríka sögu og hefði í enskum fótbolta og ég er afskaplega stoltur af því að vera orðinn stjóri þess. Í viðræðum mínum við félagið var ljóst hversu metnaðarfullar áætlanir eru um framtíðin og ég hlakka til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum," segir Gerrard.

„Ég vil þakka öllum sem ég starfaði með hjá Rangers og fyrir tækifærið að hafa stýrt hjá svona goðsagnakenndu liði. Að hafa hjálpaði liðinu að ná sínum 55. meistaratitli mun alltaf eiga stað í mínu hjarta. Ég vil óska leikmönnum, starfsliði og stuðningsmönnum alls hins besta í framtíðinni."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.