Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 11. nóvember 2024 14:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meðvituð um myndbandið og eru með það til rannsóknar
PGMOL, samtök atvinnudómara á Englandi, eru meðvituð um og eru með til rannsóknar myndband sem er í mikilli dreifingu núna á samfélagsmiðlum.

Simon Stone, blaðamaður BBC, segir frá þessu.

Myndbandið sem um ræðir snýr að David Coote, sem er dómari í ensku úrvalsdeildinni.

„Jurgen Klopp er tussa," segir Coote í myndbandinu meðal annars en hann talar bæði illa um Liverpool og Klopp í því.

Í myndbandinu segir Coote að það megi ekki fara í neina dreifingu en núna er það raunin.


Athugasemdir