Mainoo opinn fyrir Napoli - Tekur Gerrard við Boro? - Forest vill 120 milljónir punda - Kröfur Vinicius gætu ýtt honum í burtu
   þri 11. nóvember 2025 16:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Stefán gerði tveggja ára samning við Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Mynd: Selfoss
Óli Stefán Flóventsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Selfossi en hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Fótbolti.net greindi frá því fyrir tæpum mánuði síðan að Óli Stefán hefði rætt við félagið. Hann tekur við liðinu af Bjarna Jóhannssyni sem steig til hliðar í haust eftir að liðið féll úr Lengjudeildinni.

Tilkynning Selfoss
Óli hefur stýrt bæði KA og Grindavík í efstu deild karla þar sem hann náði góðum árangri með bæði lið. Hann kom Grindvíkingum til að mynda upp úr 1. deildinni sumarið 2016 og endaði ári síðar í 5. sæti Pepsi-deildarinnar sem var og hét. Þá náði endaði hann í 5. sæti með KA sumarið 2019 sem var besti árangur liðsins í fjöldamörg ár.

Þá kom hefur hann tvisvar sinnum komið liði Sindra upp um deild, fyrst árið 2012 og síðar 2022. Á nýafstöðnu tímabili var Óli aðstoðarþjálfari Sindra síðari hluta tímabilsins. Óli er með UEFA Pro þjálfaragráðu en hún er æðsta þjálfaragráða UEFA.

Óli var lunkinn á vellinum sem leikmaður og á yfir 400 leiki í deildarkeppni á Íslandi með Grindavík, Fjölni, Sindra.

„Ég var ekki endilega á leið í þjálfun aftur á þessum tímapunkti en þegar Selfoss hafði samband varð ég strax mjög áhugasamur. Eftir fyrsta kynningafund vissi ég að þetta starf ætti mjög vel við mig og fyrir það sem ég stend í þjálfun,” segir Óli.

„Hér er í senn frábær aðstaða, metnaðarfullt fólk í kringum félagið, og síðast en ekki síst spennandi leikmannahópur sem verður gaman að vinna með. Ég er stoltur og ánægður að tilheyra núna Selfoss fjölskyldunni og hlakka mikið til hefjast handa.”

Við bjóðum Óla Stefán hjartanlega velkominn í Selfoss fjölskylduna!
Athugasemdir
banner