11.12.13 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Honda til AC Milan í janúar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar fullyrða að Keisuke Honda, leikmaður CSKA Moskvu, verði formlega leikmaður AC Milan þann 3. janúar.
Ítalska félagið krækir í japanska landsliðsmanninn á Bosman-reglunni en samningur hans við rússneska félagið rennur út í lok mánaðarins.

Milan reyndi að fá þennan 27 ára leikmann í sumar fyrir lága upphæð en CSKA neitaði að selja.
Talið er að AC Milan ætli að lána einhverja af yngri leikmönnum sínum. Bryan Cristante, Riccardo Saponara og M’Baye Niang eru líklegir til að fara annað tímabundið.
Uppfært: Staðfest er að Honda verður leikmaður AC Milan í janúar.