11.12.15 - 21:39
Arnar Geir Halldórsson
Ísland mætir Bandaríkjunum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Bandaríkjunum í Bandaríkjunum í vináttuleik sunnudaginn 31. janúar í Carson í Kaliforniu en þetta var staðfest á heimasíðu KSÍ nú rétt í þessu.
Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða og því munu liðin ekki geta stillt upp sínum sterkustu liðum.
Samkvæmt ESPN verður lið Bandaríkjanna að mestu skipað leikmönnum úr MLS-deildinni og því mun Aron Jóhannsson ekki leika gegn Íslandi.
Leikurinn fer fram StubHub Center leikvangnum í Los Angeles en það er heimavöllur Steven Gerrard og félaga í LA Galaxy.
Ísland mætir Finnlandi í vináttuleik í Abu Dhabi þann 13. janúar næstkomandi. Íslenska liðið mun dvelja í viku í Abu Dhabi og líklegt er að liðið spili annan leik í þeirri ferð en þar er heldur ekki um alþjóðlega leikdaga að ræða.