Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 11. desember 2019 22:14
Fótbolti.net
Uppboð - Árituð Ronaldo treyja til styrktar SKB
Mynd: SKB
Næstu dagana mun standa yfir uppboð á Fótbolta.net þar sem boðinn verður upp portúgölsk landsliðstreyja árituð af Cristiano Ronaldo.

Allur ágóði af uppboðinu rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna á Íslandi.

Um er að ræða treyju sem var gerð fyrir portúgalska landsliðið fyrir EM í Frakklandi árið 2016.

Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, fékk treyjuna að gjöf og afhenti Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna hana.

Treyjan er í flottum ramma og er árituð af Ronaldo sjálfum.

Ronaldo skoraði á dögunum 99. mark sitt fyrir portúgalska landsliðið en hann hefur verið í lykilhlutverki í liðinu síðan árið 2003.

Bjóddu í treyju með því að senda á [email protected]

Hæsta boð - 300 þúsund.

Uppboðið stendur yfir til 12:00 föstudaginn 20. desember.
Athugasemdir
banner
banner
banner