Bayern Munchen sigraði í kvöld lokaleik sinn í riðlinum í Meistaradeildinni. Liðið sigraði Tottenham, 3-1, á heimavelli.
Sigurinn þýðir að liðið sigraði riðilinn með fullt hús stiga, sex leikir sex sigrar.
Liðið endar með +19 í markatölu sem er besta markatala þeirra liða sem hafa sigrað alla leikina í riðlinum. Risa útisigrar á Tottenham og Rauðu Stjörnunni vega þungt í þessu.

Robert Lewandowski lék ekki með Bayern í kvöld en hann hafði skorað í öllum fimm leikjunum til þessa. Markaskorarar kvöldsins voru þeir Kingsley Coman, Thomas Muller og Philippe Coutinho.
18 points 🔝
— FC Bayern English (@FCBayernEN) December 11, 2019
+19 goal difference ⚽
The best group stage in @ChampionsLeague history! 👑#MiaSanMia pic.twitter.com/A3jWKiNTTx
Athugasemdir