12.01.13 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Halldór Arnarsson í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Halldór Arnarsson, fyrirliði ÍR-inga, hefur gengið til liðs við Fram en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Samningur Halldórs við ÍR rann út um áramótin en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Fram í gærkvöldi.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur æft með Fram undanfarnar vikur og nú er ljóst að hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Halldór er uppalinn ÍR-ingur og hefur verið fastamaður í liðinu undanfarin þrjú ár en hann lék alla leiki liðsins þegar það féll úr fyrstu deildinni síðastliðið sumar.
Halldór er fjórði leikmaðurinn sem Framarar fá í sínar raðir í vetur en áður höfðu Haukur Baldvinsson, Ólafur Örn Bjarnason og Viktor Bjarki Arnarsson samið við félagið.