12.01.13 - 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Michael Appleton ráðinn stjóri Blackburn (Staðfest)

Michael Appleton hefur tekið við sínu þriðja stjórastarfi á tímabilinu, og er þriðji stjóri Blackburn á tímabilinu.

Mynd: Getty Images

Michael Appleton hefur tekið við sínu þriðja stjórastarfi á tímabilinu, og er þriðji stjóri Blackburn á tímabilinu.

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur gengið frá ráðningu á Michael Appleton sem knattspyrnustjóra liðsins en hann er þriðji stjórinn sem liðið hefur á tímabilinu.
Appleton sem er 37 ára gamall hætti með lið Blackpool sem einnig er í Championship deildinni til að taka við Blackburn, aðeins 66 dögum eftir að hafa komið til félagsins frá Portsmouth. Hann samdi til tveggja og hálfs árs.
Blackburn er í 13. sæti Championship deildarinnar sem telur 24 lið, fimm stigum frá sæti í umspili þegar 21 leikur er eftir af mótinu.
Blackburn byrjaði tímabilið með Steve Kean í stjórastólnum en hann var rekinn og Henning Berg ráðinn. Berg var svo rekinn 27. desember.

Heimild: AP