12.01.13 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð
Paulista til West Ham (Staðfest)

Paulista spilar með West Ham út tímabilið að minnsta kosti.

Mynd: Vefur West Ham

West Ham hefur gert samning við Cruzeiro í Brasilíu um að fá framherjann Wellington Paulista á láni næsta hálfa árið. Í samningnum er klásúla um að West Ham geti keypt leikmanninn og gert við hann þriggja ára samning.
Paulista hefur skorað 75 mörk í 160 leikjum fyrir Cruzeiro en einhver þeirra voru reyndar í ríkiskeppninni gegn slakari andstæðingum.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Sam Allardyce stjóri West Ham fær til félagsins í janúar. Áður komu Joe Cole og framherjarnir Marouane Chamakh og Sean Maquire.
Knattspyrnustjórar í úrvalsdeildinni hafa undanfarin þrjú og hálft ár fengið senda DVD diska með hæfileikum Wellington Paulista og nú loks tókst að koma honum út. Þetta hófst eftir að hann skoraði fimm mörk og var markahæstur eftir að liðið vann Copa Libertadores árið 2009 en það er Meistaradeild þeirra Suður Ameríkumanna.
Það hefur þó sýnt sig að það er ekki áskrift á árangur í ensku úrvalsdeildinni því Mauro Boselli sem var í sigurliði Estudiantes floppaði hjá Wigan.

Heimild: BBC