Fotbolti.net
12.01.13 - 09:00
Hafliði Breiðfjörð

Stephen Kelly til Reading (Staðfest)

Stephen Kelly er hér í baráttu við Aaron Lennon í leik gegn Tottenham.  Kelly leikur með Reading hér eftir.

Stephen Kelly er hér í baráttu við Aaron Lennon í leik gegn Tottenham. Kelly leikur með Reading hér eftir.

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur gengið frá kaupum á Stephen Kelly varnarmanni Fulham en kaupverðið hefur ekki verði gefið upp.
Kelly sem er 29 ára gamall landsliðsmaður Írlands skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Reading.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem félagið fær í félagaskiptaglugganum, kemur í kjölfar Daniel Carrico og Hope Akpan.

,,Hann er með mikla reynslu en enn ungur að árum fótboltalega,\" sagði Brian McDermott stjóri Reading á vef félagsins.

,,Hann er tilbúinn í slaginn og baráttuna. Hann er hungraður og vill standa sig vel og ég veit að hann mun gera það hjá okkur.\"

Kelly var frá aldamótum til ársins 2006 hjá Tottenham en var lánaður árið 2003 til Southend, QPR og Watford. Hann fór til Birmingham árið 2006 og lánaður þaðan til Stoke á síðari hluta tímabilsins 2008-2009 og fór það haustið til Fulham þar sem hann lék 71 leik.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.