12.01.14 - 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Baldvin Ólafsson í KA (Staðfest)

Baldvin Ólafsson er orðinn leikmaður KA.

Mynd: KA-sport.is

Baldvin Ólafsson er genginn til liðs við KA frá Þór og skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.
Baldvin er 28 ára gamall og lék með yngri flokkum KA og 19 leiki með meistaraflokki í deild og bikar á árunum 2006 til 2008.
Seinni hluta tímabilsins 2008 og sumarið 2009 lék Baldvin með Magna í 2. deildinni, áður en hann skipti yfir í Þór. Þar spilaði hann 41 leik í deild og bikar á árunum 2010-2013 en er nú kominn aftur til KA.
,,Mér líst mjög vel á þetta allt saman. Ég er búinn að æfa með liðinu í viku núna og strákarnir hafa tekið vel á móti mér,\" sagði Baldvin við síðu KA.
,,Ég ákvað að skipta þar sem ég hef ekki spilað eins mikið hjá Þór og ég hefði viljað og sá ekki fram á breytingar á því að þeir hefðu meiri not fyrir mig. Vonast til að spila meira hjá KA ásamt því að mér fannst ég eiga eitthvað óklárað hjá klúbbnum eftir að hafa yfirgefið KA fyrir 6 árum. Var því fín tímasetning á þessu finnst mér.\"