Fotbolti.net
12.01.14 - 00:19
Hafliði Breiðfjörð

Elísa Viðarsdóttir í Kristianstad (Staðfest)

Elísa í leik með ÍBV í sumar. Hún heldur nú í atvinnumennsku í Svíþjóð.

Elísa í leik með ÍBV í sumar. Hún heldur nú í atvinnumennsku í Svíþjóð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Elísa Viðarsdóttir er gengin í raðir Kristianstad í Svíþjóð en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net. Hún fer til Svþjóðar 21. janúar næstkomandi og hefur æfingar með liðinu.
,,Ég er mjög ánægð með þetta skref og samninginn. Þetta er stærsta skrefið sem ég get tekið á þessum tímapunkti, að fara í eina sterkustu deild í heimi,\" sagði Elísa við Fótbolta.net.

,,Það voru nokkur lið sem sýndu mér áhuga, nokkrir spennandi kostir en Kristianstad var mest spennandi fyrir mig. Ég hlakka til að kynnast nýjum leikmönnum, nýju umhverfi og nýjum þjálfara. Þetta er spennandi verkefni sem ég hlakka til að taka þátt í og bæta mig sem leikmann.

Elísa hefur verið fyrirliði ÍBV undanfarin ár en hún og félagið tilkynntu sameiginlega á dögunum að hún væri á förum frá félaginu.

Hún hefur nú skrifað undir eins ára samning við Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir hefur þjálfað undanfarin ár.

Fyrir hjá félaginu eru Sif Atladóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir en sú síðastnefnda er sem kunnugt er systir Elísu sem tekur sér barnsburðarleyfi þetta árið.

Elísa Viðarsdóttir verður 23 ára á árinu. Hún hóf meistaraflokksferil sinn árið 2007 og hefur allan sinn feril spilað með ÍBV, samtals 105 leiki í deild og bikar og skorað 10 mörk. Hún á að baki 8 leiki fyrir A-landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.