12.01.16 - 16:34
Elvar Geir Magnússon
Danskur miðjumaður í Fjölni (Staðfest)

Ágúst Gylfason og Martin Lund Pedersen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason og Martin Lund Pedersen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir hefur samið við 25 ára danskan miðjumann sem lék síðast með Horsens, hann heitir Martin Lund Pedersen og á 19 leiki að baki með yngri landsliðum Danmerkur.
Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi sem nú stendur yfir í Grafarvogi.
Samkvæmt upplýsingum á vefnum transfermarkt.com er Pedersen sóknarmiðjumaður sem getur einnig leyst stöðu vinstri vængmanns. Hann var á sínum tíma í unglingaliðum OB.
Við sama tilefni var tilkynnt um nýtt afreksstarf sem Grafarvogsfélagið hefur hafið. Ólafur Páll Snorrason, spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, hefur verið ráðinn í starf afreksþjálfara.
Magnús Már Einarsson er í Grafarvogi og á eftir verða birt viðtöl við Pedersen og Ágúst Gylfason, þjálfara Fjölnis.
Fjölnir hafnaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra.