Fotbolti.net
12.01.16 - 18:11
Elvar Geir Magnússon

Jonjo Shelvey í Newcastle (Staðfest)

Jonjo Shelvey yfirgefur Gylfa og félaga.

Jonjo Shelvey yfirgefur Gylfa og félaga.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er klappað og klárt. Jonjo Shelvey er orðinn leikmaður Newcastle United. Hann er keyptur frá Swansea en kaupverðið er ekki gefið upp.

Jonjo er 23 ára og hóf atvinnumannaferilinn hjá Charlton Athletic. Hann lék sinn fyrsta deildarleik fyrir aðalliðið aðeins sextán ára gamall.
Hann fór svo til Liverpool og svo til Swansea.

„Ég er mjög spenntur yfir þessu og er í skýjunum að þetta sé frágengið,\" segir Shelvey.

„Ég keyrði hingað síðustu nótt svo síðasti sólarhringur hefur verið sturlaður. En þetta er svo sannarlega þess virði. Ég er kominn í frábært félag.\"

Steve McClaren, stjóri Newcastle, er einnig hæstánægður.

„Hann hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur og er frábær viðbót í hópinn. Hann er enskur landsliðsmaður sem ég hef verið hrifinn af lengi,\" segir McClaren.

Newcastle er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.