12.01.16 - 19:39
Alexander Freyr Tamimi
Nik Chamberlain í Aftureldingu (Staðfest)

Nik Chamberlain (t.v.) er genginn í raðir Aftureldingar.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Nik Chamberlain (t.v.) er genginn í raðir Aftureldingar.

Mynd: Heimasíða Aftureldingar
Enski miðjumaðurinn Nik Anthony Chamberlain hefur gengið til liðs við Aftureldingu, en frá þessu greinir félagið á heimasíðu sinni.
Hinn 29 ára gamli Nik hefur spilað sjö tímabil á Íslandi og þar af lengst á Austurlandi hjá Huginn og Fjarðabyggð.
Sumarið 2014 var hann hluti af liði Fjarðabyggðar sem vann 2. deildina með yfirburðum og skoraði hann þar þrjú mörk í 15 leikjum. Nú síðast lék hann með Fjarðabyggð í 1. deildinni og skoraði þrjú mörk í 14 leikjum.

„Nik er mikill leiðtogi og karakter. Hann er afar duglegur og klókur leikmaður og fellur vel inn í sterkan hóp Aftureldingar,\" segir í tilkynningu Aftureldingar, en hann mun auk spilamennskunnar aðstoða við þjálfun 2. flokks karla hjá félaginu.
Heimild: Afturelding