12.01.16 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Steven Caulker til Liverpool á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur fengið varnarmanninn Steven Caulker á láni frá QPR út tímabilið.
Caulker hefur verið á láni hjá Southampton á þessu tímabili en þeim samningi hefur nú verið rift og Caulker er farinn til Liverpool.
Caulker hefur lítið fengið að spila með Southampton en síðasti leikur hans var í 6-1 tapi gegn Liverpool í enska deildabikarnum í byrjun desember.
Mikil meiðsli hafa verið í vörn Liverpool á tímabilinu en Dejan Lovren og Martin Skrtel eru frá keppni í augnablikinu.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verið í leit að varnarmanni og hann hefur nú tryggt sér Caulker út tímabilið.