Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 12. janúar 2021 14:11
Elvar Geir Magnússon
AC Milan hefur áhuga á Tomori
AC Milan hefur blandað sér í baráttuna um að fá Fikayo Tomori lánaðan út tímabilið.

Ítalska A-deildarliðið vill styrkja sig í vörninni og er að reyna að fá hinn tvítuga Mohamed Simakan frá Strasbourg.

Hvort Tomori fari til Milan gæti oltið á því hvort Milan nái að fá Simakan en þýska félagið RB Leipzig vill einnig fá franska varnarmanninn.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur staðfest að félagið sé tilbúið að lána Tomori núna í janúarglugganum en fimm miðverðir eru í leikmannahópi félagsins.

Rennes í Frakklandi, Everton, Leeds og Newcastle hafa einnig sýnt Tomori áhuga en hann féll aftar í goggunarröðinni hjá Chelsea um mitt síðasta tímabil
Athugasemdir
banner
banner