Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 12. janúar 2021 15:58
Elvar Geir Magnússon
Dembele bestur á æfingum
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
Ferill Ousmane Dembele hjá Barcelona hefur einkennst af meiðslum og vonbrigðum en hann hefur verið virkilega góður í síðustu leikjum liðsins.

El Mundo Deportivo segir að flugið á Dembele sjáist ekki bara í leikjum því samkvæmt heimildum blaðsins hefur hann verið bestur á æfingum katalónska stórliðsins að undanförnu.

Þessar upplýsingar segist blaðið hafa frá B-liðsleikmönnum sem hafa verið að æfa með aðalliðinu.

Dembele hefur byrjað alla þrjá deildarleikina á nýju ári. Hann skoraði sigurmarkið gegn Eibar eftir jól og hefur svo leikið virkilega vel gegn Huesca, Athletic Bilbao og Granada.

Miklar vonir voru bundnar við Dembele þegar hann kom til Barcelona en nú er kannski ástæða til bjartsýni upp á framhaldið.

Barcelona er í þriðja sæti La Liga, fjórum stigum frá toppliði Atletico Madrid.
Athugasemdir
banner
banner