Gareth Bale kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik þegar Tottenham vann 5-0 útisigur á Marine í enska FA-bikarnum síðastliðinn sunnudag.
Leikurinn var mjög merkilegur fyrir þær sakir að Tottenham er eitt besta lið Englands og Marine er í áttundu efstu deild; aldrei hefur verið meira bil á milli félaga í deildarkeppni sem mætast í FA-bikarnum.

Leikurinn fór fram á heimavelli Marine sem er frekar lítill og umkringdur húsum.
Ekki voru áhorfendur leyfðir á leiknum vegna kórónuveirufaraldursins en eitthvað af fólki horfði á leikinn fyrir utan völlinn. Sumir voru jafnvel með ágætis útsýni heiman frá sér.
Einn Twitter-notandi birti mynd sem fékk mikla athygli á samfélagsmiðlum. „Horfi á Gareth Bale á meðan ég halla mér út um gluggann minn. Ótrúlegt," skrifaði hann og birti mynd af Bale.
Bale er frábær fótboltamaður en hann er í láni hjá Tottenham frá Real Madrid. Hann var skærasta stjarna liðsins sem tók þátt í þessum leik. Hér að neðan má sjá myndina sem Twitter-notandinn Christopher birti en Bale svaraði honum.
— Gareth Bale (@GarethBale11) January 10, 2021
Athugasemdir