Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 12. janúar 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Slimani á leið til Lyon
Islam Slimani er á leið til Lyon
Islam Slimani er á leið til Lyon
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lyon er að ganga frá samningnum við Islam Slimani en hann kemur til félagsins frá Leicester. Þetta kemur fram í frönskum fjölmiðlum.

Slimani er 32 ára gamall framherji en hann hefur aðeins spilað nítján mínútur í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Hann var á láni hjá Mónakó á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði níu mörk og lagði upp sjö í aðeins átján leikjum en þrátt fyrir það ákvað Mónakó ekki að kaupa hann.

Slimani verður samningslaus í sumar og er frjálst að ræða við önnur félög en Lyon hefur komist að samkomulagi við Leicester um að fá hann frítt í þessum mánuði.

Leikmaðurinn gerir samning við Lyon út þessa leiktíð með möguleika á að framlengja um eitt ár. Slimani leysir Moussa Dembele af hólmi en franski framherjinn er að ganga til liðs við Atlético Madríd.
Athugasemdir
banner
banner
banner