12.02.14 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Birkir Pálsson í Huginn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Huginn frá Seyðisfirði hefur fengið varnarmanninn Birki Pálsson í sínar raðir frá Hetti.
Birkir er uppalinn hjá Huginn en hann mun leika með liðinu í 2. deild í sumar.

Síðastliðið sumar var Birkir spilandi þjálfari hjá Hetti síðari hluta tímabils en liðið féll þá niður úr þriðju deild.
Á sama tíma komst Huginn upp og Birkir hefur nú ákveðið að leika með uppeldisfélaginu í fyrsta skipti síðan árið 2005.
Birkir, sem er þrítugur, lék með Þrótti frá 2006 til 2011 áður en hann fór í Hött.
Huginn hefur einnig fengið Rúnar Frey Þórhallsson aftur á láni frá Þór en hann lék einnig með liðinu á láni í fyrra og skoraði þá þrjú mörk í 17 leikjum í 3. deildinni.