Fotbolti.net
12.02.14 - 13:39
Elvar Geir Magnússon

Skoskur miðjumaður í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Skoskur miðjumaður í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: BÍ/Bolungarvík

BÍ/Bolungarvík hefur gert eins árs samning við David Sinclair, 23 ára skoskan miðjumann sem fæddur er í Glasgow.

Sinclair hefur leikið með Livingston, Ayr United og Airdrieonians en síðustu tímabil hefur hann leikið í skosku C-deildinni.
Talsverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi BÍ/Bolungarvík frá síðasta tímabili. Margir erlendir leikmenn eru horfnir á braut og Alexander Veigar Þórarinsson og Ingimar Elí Hlynsson fóru til annarra liða í 1. deild.

Í staðinn hefur félagið fengið Björgvin Stefánsson frá Haukum, Kára Ársælsson frá ÍA, Aaron Spear frá ÍBV og nú David Sinclair.

BÍ/Bolungarvík hafnaði í fimmta sæti 1. deildarinnar síðasta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.