Sindri hefur fengið liðsstyrk frá Búlgaríu, Sindri styrkir sig því fyrir komandi átök í 2. deild kvenna í sumar.
Gergana Iliycheva heitir leikmaðurinn sem Sindri fékk og hefur hún leikið með U19 ára lið landslins.
Gergana Iliycheva heitir leikmaðurinn sem Sindri fékk og hefur hún leikið með U19 ára lið landslins.
Gergana er sautján ára varnarmaður sem verður átján ára seinna í mánuðinum. Alls hefur Gergana leikið níu U-19 landsleiki fyrir Búlgaríu.
Sindri leikur í C-deild Lengjubikarsins í riðli 3. Fyrsti leikur Sindra er gegn Tindastóli þann 22. mars.
Athugasemdir