Fotbolti.net
12.02.22 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Arek í Magna (Staðfest)

Arek í Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Magni er búið að tryggja sér hinn öfluga Arkadiusz Jan Grzelak sem skrifar undir tveggja ára samning í Grenivík.
Arkadiusz, betur þekktur sem Arek, er fæddur 1994 og hefur leikið fyrir Leikni á Fáskrúðsfirði allan ferilinn.

Arek hefur verið fyrirliði Leiknis undanfarin ár. Hann spilar sem varnartengiliður og á 263 keppnisleiki að baki.

Magni leikur í 2. deild og mun Arek því mæta sínum gömlu liðsfélögum í sameinuðu liði Leiknis F. og Fjarðabyggðar.

Arek býr yfir mikilli reynslu úr 2. deildinni þar sem hann á 84 leiki að baki. Hann hefur einnig spilað í 1. deild og 3. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.