Fotbolti.net
12.02.22 - 10:01
Elvar Geir Magnússon

Oliver Stefáns heim til ÍA á lánssamningi (Staðfest)

Oliver Stefáns heim til ÍA á lánssamningi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Oliver Stefánsson, 19 ára varnarmaður Norrköping, er kominn heim til ÍA á lánssamningi út keppnistímabilið 2022.

„Það er gott að vera kominn aftur í ÍA og ég hlakka til sumarsins," sagði Oliver þegar samningurinn var í höfn.
Oliver er að jafna sig eftir að fékk hafa fengið blóðtappa rétt fyrir neðan háls en það hélt honum frá keppnisvellinum stærstan hluta síðasta árs.

Oliver er uppalinn Skagamaður og er sonur Stefáns Þórðarsonar fyrrum landsliðsmanns og Magneu Guðlaugsdóttur fyrrum landsliðskonu.

Með því að smella hérna er hægt að horfa á viðtal sem Sæbjörn Steinke tók við Oliver í byrjun árs en þar ræddu hann um stöðu sína.

Skagamenn náðu með ótrúlegum endaspretti að bjarga sér frá falli úr efstu deild á liðnu tímabili. Þá komust þeir í bikarúrslitaleikinn en töpuðu þar fyrir Víkingum.

Auk Olivers hafa Skagamenn fengið Aron Bjarka Jósepsson frá KR og þá Christian Köhler og Johannes Vall frá Val. Aron Kristófer Lárusson, Ísak Snær Þorvaldsson, Óttar Bjarni Guðmundsson og Sindri Snær Magnússon eru hinsvegar meðal leikmanna sem hafa yfirgefið félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.