Fotbolti.net
12.03.13 - 17:14
Magnús Már Einarsson

Heiðar Geir í Fylki (Staðfest)

Heiðar Geir ásamt Ásmundi Arnarssyni þjálfara Fylkis í dag.

Heiðar Geir ásamt Ásmundi Arnarssyni þjálfara Fylkis í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Heiðar Geir Júlíusson hefur gengið til liðs við Fylki en hann gerði samning við félagið út þetta tímabil.
Heiðar Geir er uppalinn hjá Fram en hann fór árið 2009 til sænska félagsins Ängelholms.

Í vetur yfirgaf Heiðar Geir herbúðir Ängelholms og hann hefur æft með Fylkismönnum undanfarnar vikur.

Heiðar, sem er 25 ára miðjumaður, hefur nú samið við Fylkismenn og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Fylkismenn sömdu einnig við Viðar Örn Kjartansson og Pablo Punyed á dögunum en fyrr í vetur komu Kristján Páll Jónsson, Sverrir Garðarsson og Tryggvi Guðmundsson einnig til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.