Fotbolti.net
12.03.13 - 13:20
Magnús Már Einarsson

Hörður Magnússon í HK (Staðfest)

Hörður Magnússon í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknar og miðjumaðurinn Hörður Magnússon hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt HK á nýjan leik.

Hörður kemur til HK eftir að hafa leikið með norska 2. deildarliðinu Levanger undanfarin tvö og hálft ár.
Þessi 26 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá HK og hefur leikið með félaginu lengst af á sínum ferli fyrir utan stutt stopp hjá Ými og Völsungi.

Samtals hefur Hörður skorað 31 mark í 107 leikjum með HK en hann er ellefti leikjahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Bræður Harðar, Davíð og Birgir, leika einnig með HK en þeir verða allir í eldlínunni með liðinu í 2. deildinni í sumar.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.